Alhliða föndurlitir til notkunar á trölladeig, pappír, vattkúlur, frauðkúlur o.fl. Nota skal mjúka pensla í litina. Liturinn verður snertiþurr eftir eina klukkustund og fullþornaður eftir 24 klst. Litirnir blandast mjög vel saman og eru þeir þynnanlegir með vatni. Penslar hreinsast með vatni.